15.4.2010 | 11:37
Afmælishátíð 24. apríl í Iðnó!
Við hvetjum alla kórfélaga Söngsveitarinnar fyrr og síðar, velunnara hennar og tónlistarunnendur alla til að fagna með okkur hálfrar aldar afmæli á glæsilegri hátíð í Iðnó, laugardaginn 24. apríl, rifja upp góðar minningar og gleðjast saman.
Ágúst Ólafsson og Guðríður St. Sigurðardóttir flytja nokkur lög og kórinn syngur að sjálfsögðu. Sögusýning með myndum og efni úr fórum kórsins. Verið velkomin!
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkar: Dægurmál, Tónlist, Vinir og fjölskylda | Breytt 28.4.2010 kl. 23:49 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.